Júní
11.6.2011 | 20:16
Þá er nú búið að ferma Særósu Guðnýju og komin hvítasunna og fyrstu sólar sumardagarnir eru núna, búið að vera frekar kalt sem af er.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Apríl
8.4.2011 | 16:54
Þá fer nú að hilla undir páskafrí hjá öllum. Það verður ágætt að taka smá pásu og gera eitthvað annað til tilbreytingar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.mars
14.3.2011 | 16:42
Þá er nú snjórinn að verða farinn, enn bálhvasst og það á að snjóa meira seinna í vikunni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mars
8.3.2011 | 17:54
Þegar við vöknuðum í morgunn var kominn mikill snjór, snjór upp á hné, þegar við fórum frá húsinu og upp á götuna. Bíllinn enn í innkeyslunni, þarf að moka hann út. Spörum bensín í dag allaveg, með því að ganga það sem við þurfum að fara.
Bæ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gleðilegt nýtt ár
24.1.2011 | 21:41
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Desember 2010
2.12.2010 | 18:26
Þá er það aðventan og allt fjörið í kringum jólaundirbúninginn. Frábært
Prófundirbúningur á fullu líka, gott þegar það er búið og svo jólafríið sem allir bíða eftir.
Bara 18 daga í heim ferð hjá okkur og styttist óðum.
Bæ bæ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Páskar framundan
29.3.2010 | 22:34
Páskaterta
3-4 eggjahvítur
200 gr sykur
2 bollar Kornflex
1 tsk lyftiduft
Eggjahvítur og sykur stífþeyttur
Kornflex og lyftiduft sett út í og hrært saman við með sleif.
Sett í tvö tertuform sem eru klædd að innan með álpappír og smurð að innan með smjörlíki.
Bakað við 150 gráðu hita í eina klukkustund eða þar til þér finnst marensinn hafa þornað nóg.
Sett á milli botnana:
Þeyttur rjómi með brytjuðum döðlum og súkkulaði.
Krem ofan á tertuna:
2 stk eggjarauður
1 tsk sykur
100 gr brætt súkkulaði
1 dl þeyttur rjómi
Eggjarauður og sykur þeyttur saman ( á að þykkna)
Þá er súkkulaðinu blandað saman við í mjórri bunu og síðast er sett út í þeyttur rjóminn og hann er settur út í varlega með sleif.
Þá er kremið tilbúið og sett fyrir tertuna og látið leka út yfir hliðarnar.
Verði ykkur að góðu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Daim terta
11.3.2010 | 21:10
1)
3 stk eggjahvítur
1 bolli sykur
1 bolli Rice Krispie
Eggjahvítur og sykur þeytt vel saman (stíft eins og í marens) og Rice Krispie sett síðast.
Marensinn er settur í tvö tertuform, klædd að innan með álpappír og smurð með smjörlíki.
Bakað við 150 gráður í 1 klukkustund.
2)
3 stk eggjarauður
1 dl sykur
Þeytt vel saman
3)
4 dl rjómi þeyttur
2 og 3 blandað varlega saman og eitt stórt Daim (mulið) sett saman við.
Marensinn er settur á sitthvorn tertudiskinn og blandan úr 2 og 3 skift í tvennt og sett ofan á og látið fljóta vel út fyrir marensinn. Terturnar settar í frystir og teknar út svona hálftíma áður en þær eru bornar fram. Verða eins og ístertur.
Verði ykkur að góðu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skúffukaka
5.3.2010 | 15:14
2 bollar hveiti
1 1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsóti
1 tsk salt
1 1/2 bolli sykur
3 msk kakó
1oo gr smjörlíki
1 bolli mjólk
2 stk egg
Allt hrært saman í eina til tvær mínútur NEMA eggin eru sett síðast eitt og eitt og hrært vel á milli.
Glassúr ofan á kökuna, þegar hún er farin aðeins að kólna
1-2 bollar flórsykur
1-2 msk kakó
hrært saman með volgu vatni, setja lítið í einu og hræra á milli svo ekki verði of þunnt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.febrúar
15.2.2010 | 15:44
Gullkorn úr bókinni Þegar orð fá vængi
Erfiðleikarnir við að framfleyta fjölskyldunni nú á dögum stafa af því, að ríkisstjórnin krefst þess að fá að sitja við borðið (ókunnur höfundur).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)